UPPFÆRT! ákveðið að fara ekki í Actavismótið en förum á póstmót breiðabliks. nánar síðar
Wednesday, December 15, 2010
Jólafrí og Actavismót Hauka. (UPPFÆRT!)
UPPFÆRT! ákveðið að fara ekki í Actavismótið en förum á póstmót breiðabliks. nánar síðar
Wednesday, December 1, 2010
Dagskrá á jólamóti nettó
Verum mætt amk. 20. mínútum fyrir fyrsta leik.
Þátttökugjald er 2500 krónur sem greiðist til þjálfara fyrir fyrsta leik. (ÍR ákvað að fella niður 5000 króna þátttökugjald á félögin)
Tuesday, November 30, 2010
Nettómót ÍR helgina 4-5 desember.
JÓLAMÓT NETTÓ OG ÍR
Helgina 4.-5. desember n.k. mun körfuknattleiksdeild ÍR standa fyrir stórmóti
í samvinnu við Nettó. Mótið er fyrir yngstu iðkendurna, drengi og stúlkur, sem
fædd eru 1999-2004. Keppt verður í Íþróttahúsinu við Seljaskóla.
Leikið verður 2 x 10 mínútur og verður leiktíminn ekki stöðvaður. Mótið
mun fara fram á tveimur völlum í senn (spilað 5 á 5). Stigin verða ekki talin
enda allir komnir í jóla-keppnisskap. Hver hópur mun spila 3-4 leiki annan hvorn daginn og á það að klárast á 3-4 tímum.
Við í Val ætlum auðvitað ekki að láta okkar eftir liggja og förum með lið í nokkrum aldurshópum. Aldurshóparnir eru:
6-7 ára kk/kvk (Bloggsíða: http://valurkarfamb6-7.blogspot.com/)
8-9 ára kk (Bloggsíða: http://valurkarfamb8-9.blogspot.com/ )
10-11 kvk (Bloggsíða: http://valurkarfambkv.blogspot.com/ )
10-11 kk (Bloggsíða: http://valurkarfamb10-11.blogspot.com/ )
Við munum tilkynna leikdag og leiktíma á bloggsíðunum vonandi í seinasta lagi á fimmtudag.
Valur borgar engin mótsgjöld yngri flokka utan Íslandsmóta og því mun gjaldið deilast niður á þátttakendur. Þátttökugjald á hvern iðkanda er því krónur 3.000 sem ætti að vera rúmlega nóg fyrir gjaldinu. Afgangurinn mun ganga upp í mótsgjald næsta móts fyrir þá sem taka þátt í þessu móti. Gjaldið skal greiða til þjálfara á leikdegi fyrir fyrsta leik.
Minni alla á að verða sér út um búninga í Hummel búðinni milli kl. 16:00-18:00 í þessari viku.
Allar nánari upplýsingar verða settar inn á bloggið reglulega fyrir helgina.
Ef einhverjar spurningar eru sendið þá póst á Lydur06@ru.is
Tuesday, November 23, 2010
Föstudagurinn
Æfingin á föstudaginn (26.nóv.) fellur niður vegna handboltaleiks sem er í húsinu.
Í staðin verður pizzuveisla hjá minniboltanum.......
Föstudaginn 26. nóvember ætla minniboltaflokkar körfunnar að halda pizzuveislu í Lollastúkunni í Vodafonehöllinni. Veislan verður milli kl. 16:30-18:00 og er stefnan að horfa á DVD-mynd á þessum tíma. Verð fyrir pizzu og gos er krónur 500. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til ykkar þjálfara (hvort þið ætlið að mæta eða ekki) svo við vitum ca. fjölda iðkenda.
Mb. 8-9: Lýður 694-4033 (lydur06@ru.is)
Mb. 10-11: Frosti 861-7038 (frostisig@gmail.com)
Mb. kvenna: Dagný 846-9113 (danna1072@hotmail.com)
kv.Dagný
Monday, October 4, 2010
Breyting á æfingunni á fimmtudaginn
Vildi bara minna á að það verður engin æfing á fimmtudaginn. Æfingin færist yfir á miðvikudag
kl. 16:40-17:30 og verður hún í Gamla salnum.
Kv.Dagný