Tuesday, November 30, 2010

Nettómót ÍR helgina 4-5 desember.

JÓLAMÓT NETTÓ OG ÍR

Helgina 4.-5. desember n.k. mun körfuknattleiksdeild ÍR standa fyrir stórmóti

í samvinnu við Nettó. Mótið er fyrir yngstu iðkendurna, drengi og stúlkur, sem

fædd eru 1999-2004. Keppt verður í Íþróttahúsinu við Seljaskóla.

Leikið verður 2 x 10 mínútur og verður leiktíminn ekki stöðvaður. Mótið

mun fara fram á tveimur völlum í senn (spilað 5 á 5). Stigin verða ekki talin

enda allir komnir í jóla-keppnisskap. Hver hópur mun spila 3-4 leiki annan hvorn daginn og á það að klárast á 3-4 tímum.

Við í Val ætlum auðvitað ekki að láta okkar eftir liggja og förum með lið í nokkrum aldurshópum. Aldurshóparnir eru:

6-7 ára kk/kvk (Bloggsíða: http://valurkarfamb6-7.blogspot.com/)

8-9 ára kk (Bloggsíða: http://valurkarfamb8-9.blogspot.com/ )

10-11 kvk (Bloggsíða: http://valurkarfambkv.blogspot.com/ )

10-11 kk (Bloggsíða: http://valurkarfamb10-11.blogspot.com/ )

Við munum tilkynna leikdag og leiktíma á bloggsíðunum vonandi í seinasta lagi á fimmtudag.

Valur borgar engin mótsgjöld yngri flokka utan Íslandsmóta og því mun gjaldið deilast niður á þátttakendur. Þátttökugjald á hvern iðkanda er því krónur 3.000 sem ætti að vera rúmlega nóg fyrir gjaldinu. Afgangurinn mun ganga upp í mótsgjald næsta móts fyrir þá sem taka þátt í þessu móti. Gjaldið skal greiða til þjálfara á leikdegi fyrir fyrsta leik.

Minni alla á að verða sér út um búninga í Hummel búðinni milli kl. 16:00-18:00 í þessari viku.

Allar nánari upplýsingar verða settar inn á bloggið reglulega fyrir helgina.

Ef einhverjar spurningar eru sendið þá póst á Lydur06@ru.is

Tuesday, November 23, 2010

Föstudagurinn

Hæhæ

Æfingin á föstudaginn (26.nóv.) fellur niður vegna handboltaleiks sem er í húsinu.

Í staðin verður pizzuveisla hjá minniboltanum.......

Föstudaginn 26. nóvember ætla minniboltaflokkar körfunnar að halda pizzuveislu í Lollastúkunni í Vodafonehöllinni. Veislan verður milli kl. 16:30-18:00 og er stefnan að horfa á DVD-mynd á þessum tíma. Verð fyrir pizzu og gos er krónur 500. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til ykkar þjálfara (hvort þið ætlið að mæta eða ekki) svo við vitum ca. fjölda iðkenda.

Mb. 8-9: Lýður 694-4033 (lydur06@ru.is)
Mb. 10-11: Frosti 861-7038 (frostisig@gmail.com)
Mb. kvenna: Dagný 846-9113 (danna1072@hotmail.com)


kv.Dagný