Jæja stelpur, þá er þetta í seinasta sinn sem ég skrifa hérna.
Takk allar saman fyrir veturinn, þetta er búið að vera virkilega gaman hjá okkur og var ég alveg þvílíkt heppin að fá að þjálfa svona frábæran hóp, þið eruð algjörir snillingar. Ég verð allavega að viðurkenna að ég á eftir að sakna ykkar næsta vetur þegar ég verð á Flórída.
Veriði duglegar að æfa ykkur í sumar og muniði að aukaæfingin skapar alltaf meistarann. Þið getið náð alveg eins langt og þið ætlið ykkur í öllu sem þið viljið, muniði bara að hafa trú á því. Ég átti mér stóra drauma þegar ég var jafn gömul ykkur og mínir draumar rættust alltaf smám saman með allri vinnunni sem ég lagði á mig. Ekki hætta að hafa trú á draumum ykkar heldur látið þá rætast :)
Ég vil einnig minna á körfuboltanámskeiðið sem verður á vegum Vals í Vodafonehöllinni í sumar. Námskeiðið verður í ágúst, skráning er hafin á www.valur.is
Ég hlakka allavega rosalega til að fylgjast með ykkur í framtíðinni. Svo sjáumst við nú vonandi eitthvað niðrí Valsheimili í sumar.
Vonast allavega til að sjá ykkur sem flestar þriðjudaginn 31.maí. Þar er ég að fara að keppa stórleik í fótboltanum á móti Stjörnunni. Hann hefst klukkan 19:15 á Vodafonevellinum. Seinast þegar við spiluðum á móti Stjörnunni fékk ég alveg þvílíkt góða stuðningsmenn og vonandi mæta bara fleiri á þriðjudaginn ;)
Gangi ykkur vel stelpur
kveðja, Dagný :)
Friday, May 27, 2011
Wednesday, May 25, 2011
Seinasta vikan
Hæ stelpur,
Núna er þetta seinasta vikan hjá okkur. Á morgun þann 26.maí verður pizzuveisla uppí Lollastúku, Lýður er búinn að senda póst á foreldra ykkar og þar stendur allt um þetta.
Á föstudaginn, 27.maí er seinasta æfingin okkar og því er mikilvægt að sem flestar mæti svo við getum haft skemmtilega æfingu í lokin allar saman.
- Dagný

Thursday, May 5, 2011
Uppskeruhátíð þann 12.maí
Handbolti og karfa í Val
Uppskeruhátíð yngri flokka
Uppskeruhátíð yngri flokkanna í handbolta og körfubolta verður haldin í íþróttasal Vodafone hallarinnar fimmtudaginn 12. maí kl.16:30. Þar verður uppskera vetrarins tíunduð og viðurkenningar veittar fyrir tímabilið 2010-2011.
Að lokinni afhendingu viðurkenninga býður Valur upp á safa og kaffi fyrir alla gesti. Iðkendur eru beðnir um að koma með köku/brauðmeti á hlaðborð.
Við hvetjum alla iðkendur til að mæta í æfingagalla Vals eða öðrum rauðum fatnaði. Við hvetjum einnig foreldra til að mæta og fagna uppskerunni með börnum sínum.
Með Valskveðju
Uppskeruhátíðarnefnd

Wednesday, May 4, 2011
Næstu æfingar....
Hæhæ
Vegna afmælis Vals þá falla æfingar niður fös 06.maí í stóra salnum og út vikuna á eftir, 09-14.maí.
Það eru svo tónleikar 17.maí í salnum svo æfingin sem á að vera þá fellur líka niður.
19.maí myndum við þá hittast aftur :)
kv.Dagný
p.s.Minni á bloggið hérna fyrir neðan í sambandi við dósasöfnunina!

Dósasöfnun í dag 4.maí
Dósa og flöskusöfnun 4. maí
Miðvikudaginn 4. maí ætla allir yngri flokkar Vals í handbolta, fótbolta og körfubolta að fara í flösku og dósasöfnun, mæting er í Hlíðaskóla kl 17 og þá fá allir úthlutaðar götur til að fara í, þeir sem mæta verða að hafa einn fullorðinn með sér til aðstoðar. Hagnaðurinn skiptist jafnt á milli þeirra sem mæta og áætlum við að öllu verði lokið kl. 21.
Sjámust hress í Valsgallanum og muna að hafa svarta plastpoka meðferðis.
Elfur Sif og Gísli sími 660-8860
Foreldrar Ýmis Arnar ( 1997) Tjörva Týs ( 2000) æfa handbolta og fótbolta

Wednesday, April 13, 2011
Helgin og Páskafrí
Laugardaginn 16. apríl nk. ætlum við í tilefni af 100 ára afmæli Vals að halda körfuboltadag hérna í Valsheimilinu. Haukar frá Hafnarfirði munu koma í heimsókn til okkar og keppa við okkur í körfubolta og í lokin verður öllum (iðkendum, þjálfurum og foreldrum) boðið upp á pylsur og svaladrykk. Leikið verður með svipuðu sniði og í félagsmótum, þeas. 4x10 mínútna leikir (leiktími aldrei stöðvaður) og stig ekki talin. Þetta verður keyrt í gegn á nokkuð stuttum tíma svo það er ekki mikil viðvera vegna þessa. Dagskráin verður svohljóðandi:
Leikir kl. 10:30:
Völlur 1a: minnibolti 8 ára drengir
Völlur 1b: minnibolti 9 ára drengir
Völlur 2: minnibolti kvenna
Völlur 3: Minnibolti 10-11 ára drengir
Að loknum leikjum verður svo myndataka þar sem allir iðkendur og þjálfarar stilla sér upp á miðju gólfinu.Grillveisla fyrir yngri iðkendur.
Það er mæting 10:15 niðrí Valsheimili, allar að reyna að vera í búningum.
Stelpurnar í stúlknaflokki eru að fara að keppa um kvöldið kl: 19:00 við Keflavík í Laugardalshöllinni, þetta er undanúrslitakeppnin um Íslandsmeistaratitilinn. Þetta eru Selma og Magga og þær og væri rosalega gaman ef við gætum farið saman að hvetja þær :) Ég veit að þeim langar rosalega að fá ykkur á leikinn...
Páskafríið... Það byrjar eftir grillveisluna á laugardaginn og svo sjáumst við aftur á æfingu eftir páska þriðjudaginn 26.apríl :)
kv. Dagný

Friday, March 25, 2011
Mótið um helgina....
Hérna eru leikirnir sem við spilum um helgina. Aðeins eldri stelpurnar mæta á þetta mót s.s Kristín Arna,Kristín Ásta,Kristel,María,Eyrún,Anna Guðbjörg, Gunnþórunn,Valborg,Eyja, Anna Magnúsar og Sóley.
Það er mæting í Seljaskóla(þar sem við kepptum fyrir jól) klukkan 12:20 á laugardaginn.
Á sunnudaginn eiga allar að vera mættar klukkan 10:30.
26-03-2011 13:00 Valur - Haukar MB st. - Seljaskóli
26-03-2011 16:00 Valur - Tindastoll MB - Seljaskóli
27-03-2011 11:00 Valur - KR MB st. - Seljaskóli
27-03-2011 13:00 Valur - Hamar MB st. - Seljaskóli
27-03-2011 15:00 Valur - ÍR MB st. - Seljaskóli
Muna að taka hollt og gott nesti með.

Sunday, March 20, 2011
Komandi vika....
Hæhæ
Ég er á leiðinni til Flórída á morgun að skoða háskóla svo ég verð lítið með ykkur í vikunni.
Orri ætlar að þjálfa ykkur fyrir mig á þriðjudaginn og svo er ég búin að tala við Margréti (ykkar ósk) og bíð eftir svari frá henni hvort að hún geti tekið fimmtudagsæfinguna :)
Við erum skráðar sem gestalið á Íslandsmótinu sem fer fram næstu helgi. Það er haldið í Seljaskóla. Þetta er mót fyrir 11 ára stelpur svo ég ætla byðja allar þær sem verða 11 og 12 ára á árinu að taka næstu helgi frá :)
Ég læt ykkur svo vita hvernig leikjaplanið verður þegar ég hitti ykkur á æfingu á föstudaginn.
Ætla svo að minna ykkur á Valur-Þór Ak. sem hefst kl. 20:00 á morgun í Vodafonehöllinni (karlar) og svo er annar leikur á þriðjudaginn en þá eru konurnar að spila á móti Stjörninni og hefst sá leikur kl. 20:00 og er líka í Vodafonehöllinni.
Veriði duglegar að mæta á æfingar þó ég sé ekki viðstödd, ég fæ alltaf að heyra hverjar mæta. Hlakka til að hitta ykkur á föstudaginn :)

Thursday, March 17, 2011
Engin æfing 18.mars
Æfingin á morgun þann 18.mars fellur niður þar sem Vodafonehöllin er lokuð.
Árshátíð Icelandair er í húsinu.
kv.Dagný
Árshátíð Icelandair er í húsinu.
kv.Dagný
Thursday, February 24, 2011
NETTÓMÓTIÐ
Hæhæ
Ég er að fara erlendis með landsliðinu að keppa frá 28.feb.-10.mars svo ég hitti ykkur sprækar á æfingu 11.mars. Á meðan ég verð úti verða þó æfingar í fullum gangi og ætla stelpur úr 10.flokki Vals að taka þessar 5 æfingar sem ég missi af svo veriði duglegar að mæta hjá þeim :)
Lýður er búinn að senda póst á alla foreldra varðandi Nettómótið sem fer fram í Keflavík helgina 5. og 6.mars. Það er mjög mikilvægt að foreldrar tilkynni til Lýðs yfirþjálfara hvort að barnið ykkar mæti. Það verður að láta hann vita í seinasta lagi á sunnudaginn svo hann geti séð hvort að það sé næg þátttaka og hvort að við náum í lið.
Hægt er að senda inn skráningu á netfangið hans lydur06@ru.is.
Einnig vantar 1-2 farastjóra til að vera með stelpunum á mótinu svo þeir sem hafa áhuga á því meiga endilega láta hann vita.
Hérna eru upplýsingar um mótið.... http://www.karfan.is/frettir/2011/02/16/nettomotid_2011
Villi einnig minna á samningana, það hafa nokkrir skilast inn en það vantar samt enn slatta. Mikilvægt að allar skili!!

Sunday, February 20, 2011
BÍÓFERÐ
Hæhæ
Næsta föstudag, þann 25.febrúar verður FRÍ á æfingu en í staðin ætlum við að taka BÍÓFERÐ saman á miðvikudaginn (23.feb).
Myndin sem við ætlum á heitir Just Go with It og byrjar hún kl: 20:00.
Hún er aðeins sýnd í Smárabíó svo við höldum allar saman í Smáralindina.
Þið ráðið auðvitað hvort þið mætið eða ekki en auðvitað væri lang skemmtilegast ef við færum allar saman og höfum rosa gaman :)
Við skulum hittast allar niðrí Valsheimili kl. 19:20 og getum þá raðað okkur niður í bíla. Taliði endilega við foreldra ykkar og athugið hvort þeir geti annaðhvort skutlað eða sótt :)
Sjáumst á æfingu á þriðjudaginn....
kv.Dagný
p.s. MUNA AÐ SKOÐA FÆRSLUNA FYRIR NEÐAN. MIKILVÆGT AÐ SAMNINGARNIR FARI AÐ KOMA TIL MÍN :)

Friday, February 18, 2011
Samningar
Hæhæ
Það er mjög mikilvægt að þið farið að skila samningunum til mín. Það hafa aðeins fjórar stelpur skilað mér. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir þessar nýju því við höfum ekki netfangið hjá foreldrum þeirra og það fer að styttast í Nettómótið sem er fyrstu helgina í mars og það er mjög mikilvægt að allir foreldrar fái upplýsingarnar.
Ég á örfáa samninga eftir fyrir þær sem hafa týnt sínum, þið verðið bara að byðja mig um hann á æfingu.... Einfaldast er þó að prenta þetta bara út sjálfar inná:
http://valur.is/media/PDF/Leikmanna_og_foreldrasamningur.pdf
Foreldrar... Muniði með stelpunum að fylla þetta út með þeim og setja samninginn ofan í tösku, ég er stanslaust að minna þær á þetta en það gleymist strax.

Wednesday, February 9, 2011
Íslandsmót um helgina
Hæhæ
Við erum skráðar sem gestalið á Íslandsmótinu um helgina í B-riðli.
Riðillinn fer fram í Rimaskóla. Þetta er fyrir þær sem verða 11 og 12 ára á árin
en yngri stelpunum er velkomið að koma og horfa á.
Hérna fyrir neðan eru leikirnir sem verða spilaðir um helgina, þetta eru tveir leikir
á laugardeginum og tveir leikir á sunnudeginum.
Mæting kl. 10:20 á laugardeginum.
Mæting kl. 8:30 á sunnudeginum.
12-02-2011 10:00 Haukar MB st. Sýnishorn Hamar MB st. Rimaskóli
12-02-2011 11:00 Fjölnir MB st. Sýnishorn Valur mb. KV Rimaskóli
12-02-2011 12:00 Tindastoll MB Sýnishorn Hamar MB st. Rimaskóli
12-02-2011 13:00 Haukar MB st. Sýnishorn Valur mb. KV Rimaskóli
12-02-2011 14:00 Fjölnir MB st. Sýnishorn Tindastoll MB Rimaskóli
13-02-2011 09:00 Valur mb. KV Sýnishorn Hamar MB st. Rimaskóli
13-02-2011 10:00 Haukar MB st. Sýnishorn Tindastoll MB Rimaskóli
13-02-2011 11:00 Fjölnir MB st. Sýnishorn Hamar MB st. Rimaskóli
13-02-2011 12:00 Tindastoll MB Sýnishorn Valur mb. KV Rimaskóli
13-02-2011 13:00 Fjölnir MB st. Sýnishorn Haukar MB st. Rimaskóli

Wednesday, January 26, 2011
Leikmannasamningar og æfingargjöld
Nú er búið að taka ákvörðun um æfingagjöld fyrir árið 2011. Að þessu sinni reyndist nauðsynlegt að hækka þau í samræmi við aukinn rekstarkostnað sem og niðurskurð styrkja frá Reykjavíkurborg. Hækkanir eru aldrei vinsælar en valið stóð á milli þess að hækka æfingagjöldin eða minnka þjónustuna (loka um helgar, fækka æfingum o.s.frv.) Allir krakkar frá 3.-7. Flokk í fótbolta eru skráðir með árgjald inn í rafræna Reykjavík og er það gert í stað þess að hafa greiðslutímabilin þrjú eins og verið hefur. Hægt er að ráðstafa og skipta eftirstöðvunum niður á allt að átta mánuði ef haft er samband við skrifstofu fyrir 1. mars annars er sendur út greiðsluseðill með allri upphæðinni. Hægt er að sjá gjaldskrá æfingagjalda fyrir árið 2011 á
heimasíðunni valur.is.
Ákveðið hefur verið að gera "leikmannasamninga" við alla yngri flokka iðkendur hjá félaginu í öllum greinum. Að sjálfsögðu er slíkur samningur ekki bindandi fyrir einstakling undir 16 ára og er fyrst og fremst gerður til að auka upplýsingaflæði og ánægju. Samningurinn er þannig upp byggður að foreldrar fylla út allar upplýsingar um sig og leikmanninn.
Samningurinn inniheldur nokkur atriði varðandi skyldur leikmanns, foreldra og félagsins sem eru almenns eðlis varðandi samstarf leikmanns, félags og foreldra.
Samningurinn gildir til loka árs og endurnýjast með staðfestingu foreldris/forráðamanns við upphaf hvers tímabils. Samningseyðublöðin fást hjá þjálfurum allra flokka og eiga að skilast til þjálfara þess flokks sem leikmaðurinn tilheyrir. Einnig er hægt að opna og prenta samninginn af heimasíðu okkar og skila til þjálfara.

Thursday, January 6, 2011
Þrettándabrenna
Þrettándabrenna
Í dag, fimmtudaginn 6. janúar ætlum við Valsarar að kveðja síðasta ár og taka á móti nýju 100 ára afmælisári með þrettándahátíð. Allt er þetta þó með fyrivara um hvernig viðrar til hátíðarhalda. Dagskráin hefst kl. 18:00 að Hlíðarenda, þar sem gefnir verðar kyndlar (meðan birgðir endast) og heitt kakó. Svo verður lagt af stað að brennustæði sem verður við malarbílastæðið og stefnt að því að kveikja í brennunni kl. 18:30. Þar mun Valskórinn taka nokkur lög með hjálp viðstaddra. Vonandi sjáumst við sem flest.

Subscribe to:
Posts (Atom)