Wednesday, January 26, 2011

Leikmannasamningar og æfingargjöld

Nú er búið að taka ákvörðun um æfingagjöld fyrir árið 2011. Að þessu sinni reyndist nauðsynlegt að hækka þau í samræmi við aukinn rekstarkostnað sem og niðurskurð styrkja frá Reykjavíkurborg. Hækkanir eru aldrei vinsælar en valið stóð á milli þess að hækka æfingagjöldin eða minnka þjónustuna (loka um helgar, fækka æfingum o.s.frv.) Allir krakkar frá 3.-7. Flokk í fótbolta eru skráðir með árgjald inn í rafræna Reykjavík og er það gert í stað þess að hafa greiðslutímabilin þrjú eins og verið hefur. Hægt er að ráðstafa og skipta eftirstöðvunum niður á allt að átta mánuði ef haft er samband við skrifstofu fyrir 1. mars annars er sendur út greiðsluseðill með allri upphæðinni. Hægt er að sjá gjaldskrá æfingagjalda fyrir árið 2011 á
heimasíðunni valur.is.

Ákveðið hefur verið að gera "leikmannasamninga" við alla yngri flokka iðkendur hjá félaginu í öllum greinum. Að sjálfsögðu er slíkur samningur ekki bindandi fyrir einstakling undir 16 ára og er fyrst og fremst gerður til að auka upplýsingaflæði og ánægju. Samningurinn er þannig upp byggður að foreldrar fylla út allar upplýsingar um sig og leikmanninn.
Samningurinn inniheldur nokkur atriði varðandi skyldur leikmanns, foreldra og félagsins sem eru almenns eðlis varðandi samstarf leikmanns, félags og foreldra.
Samningurinn gildir til loka árs og endurnýjast með staðfestingu foreldris/forráðamanns við upphaf hvers tímabils. Samningseyðublöðin fást hjá þjálfurum allra flokka og eiga að skilast til þjálfara þess flokks sem leikmaðurinn tilheyrir. Einnig er hægt að opna og prenta samninginn af heimasíðu okkar og skila til þjálfara.

Thursday, January 6, 2011

Þrettándabrenna

Þrettándabrenna

Í dag, fimmtudaginn 6. janúar ætlum við Valsarar að kveðja síðasta ár og taka á móti nýju 100 ára afmælisári með þrettándahátíð. Allt er þetta þó með fyrivara um hvernig viðrar til hátíðarhalda. Dagskráin hefst kl. 18:00 að Hlíðarenda, þar sem gefnir verðar kyndlar (meðan birgðir endast) og heitt kakó. Svo verður lagt af stað að brennustæði sem verður við malarbílastæðið og stefnt að því að kveikja í brennunni kl. 18:30. Þar mun Valskórinn taka nokkur lög með hjálp viðstaddra. Vonandi sjáumst við sem flest.