Hæhæ
Ég er á leiðinni til Flórída á morgun að skoða háskóla svo ég verð lítið með ykkur í vikunni.
Orri ætlar að þjálfa ykkur fyrir mig á þriðjudaginn og svo er ég búin að tala við Margréti (ykkar ósk) og bíð eftir svari frá henni hvort að hún geti tekið fimmtudagsæfinguna :)
Við erum skráðar sem gestalið á Íslandsmótinu sem fer fram næstu helgi. Það er haldið í Seljaskóla. Þetta er mót fyrir 11 ára stelpur svo ég ætla byðja allar þær sem verða 11 og 12 ára á árinu að taka næstu helgi frá :)
Ég læt ykkur svo vita hvernig leikjaplanið verður þegar ég hitti ykkur á æfingu á föstudaginn.
Ætla svo að minna ykkur á Valur-Þór Ak. sem hefst kl. 20:00 á morgun í Vodafonehöllinni (karlar) og svo er annar leikur á þriðjudaginn en þá eru konurnar að spila á móti Stjörninni og hefst sá leikur kl. 20:00 og er líka í Vodafonehöllinni.
Veriði duglegar að mæta á æfingar þó ég sé ekki viðstödd, ég fæ alltaf að heyra hverjar mæta. Hlakka til að hitta ykkur á föstudaginn :)
kv.Dagný
No comments:
Post a Comment