Laugardaginn 16. apríl nk. ætlum við í tilefni af 100 ára afmæli Vals að halda körfuboltadag hérna í Valsheimilinu. Haukar frá Hafnarfirði munu koma í heimsókn til okkar og keppa við okkur í körfubolta og í lokin verður öllum (iðkendum, þjálfurum og foreldrum) boðið upp á pylsur og svaladrykk. Leikið verður með svipuðu sniði og í félagsmótum, þeas. 4x10 mínútna leikir (leiktími aldrei stöðvaður) og stig ekki talin. Þetta verður keyrt í gegn á nokkuð stuttum tíma svo það er ekki mikil viðvera vegna þessa. Dagskráin verður svohljóðandi:
Leikir kl. 10:30:
Völlur 1a: minnibolti 8 ára drengir
Völlur 1b: minnibolti 9 ára drengir
Völlur 2: minnibolti kvenna
Völlur 3: Minnibolti 10-11 ára drengir
Að loknum leikjum verður svo myndataka þar sem allir iðkendur og þjálfarar stilla sér upp á miðju gólfinu.Grillveisla fyrir yngri iðkendur.
Það er mæting 10:15 niðrí Valsheimili, allar að reyna að vera í búningum.
Stelpurnar í stúlknaflokki eru að fara að keppa um kvöldið kl: 19:00 við Keflavík í Laugardalshöllinni, þetta er undanúrslitakeppnin um Íslandsmeistaratitilinn. Þetta eru Selma og Magga og þær og væri rosalega gaman ef við gætum farið saman að hvetja þær :) Ég veit að þeim langar rosalega að fá ykkur á leikinn...
Páskafríið... Það byrjar eftir grillveisluna á laugardaginn og svo sjáumst við aftur á æfingu eftir páska þriðjudaginn 26.apríl :)
kv. Dagný
No comments:
Post a Comment