Friday, May 27, 2011

VALUR

Jæja stelpur, þá er þetta í seinasta sinn sem ég skrifa hérna.
Takk allar saman fyrir veturinn, þetta er búið að vera virkilega gaman hjá okkur og var ég alveg þvílíkt heppin að fá að þjálfa svona frábæran hóp, þið eruð algjörir snillingar. Ég verð allavega að viðurkenna að ég á eftir að sakna ykkar næsta vetur þegar ég verð á Flórída.

Veriði duglegar að æfa ykkur í sumar og muniði að aukaæfingin skapar alltaf meistarann. Þið getið náð alveg eins langt og þið ætlið ykkur í öllu sem þið viljið, muniði bara að hafa trú á því. Ég átti mér stóra drauma þegar ég var jafn gömul ykkur og mínir draumar rættust alltaf smám saman með allri vinnunni sem ég lagði á mig. Ekki hætta að hafa trú á draumum ykkar heldur látið þá rætast :)

Ég vil einnig minna á körfuboltanámskeiðið sem verður á vegum Vals í Vodafonehöllinni í sumar. Námskeiðið verður í ágúst, skráning er hafin á www.valur.is

Ég hlakka allavega rosalega til að fylgjast með ykkur í framtíðinni. Svo sjáumst við nú vonandi eitthvað niðrí Valsheimili í sumar.
Vonast allavega til að sjá ykkur sem flestar þriðjudaginn 31.maí. Þar er ég að fara að keppa stórleik í fótboltanum á móti Stjörnunni. Hann hefst klukkan 19:15 á Vodafonevellinum. Seinast þegar við spiluðum á móti Stjörnunni fékk ég alveg þvílíkt góða stuðningsmenn og vonandi mæta bara fleiri á þriðjudaginn ;)

Gangi ykkur vel stelpur

kveðja, Dagný :)

Wednesday, May 25, 2011

Seinasta vikan

Hæ stelpur,

Núna er þetta seinasta vikan hjá okkur. Á morgun þann 26.maí verður pizzuveisla uppí Lollastúku, Lýður er búinn að senda póst á foreldra ykkar og þar stendur allt um þetta.

Á föstudaginn, 27.maí er seinasta æfingin okkar og því er mikilvægt að sem flestar mæti svo við getum haft skemmtilega æfingu í lokin allar saman.

- Dagný

Thursday, May 5, 2011

Uppskeruhátíð þann 12.maí

Handbolti og karfa í Val
Uppskeruhátíð yngri flokka

Uppskeruhátíð yngri flokkanna í handbolta og körfubolta verður haldin í íþróttasal Vodafone hallarinnar fimmtudaginn 12. maí kl.16:30. Þar verður uppskera vetrarins tíunduð og viðurkenningar veittar fyrir tímabilið 2010-2011.
Að lokinni afhendingu viðurkenninga býður Valur upp á safa og kaffi fyrir alla gesti. Iðkendur eru beðnir um að koma með köku/brauðmeti á hlaðborð.
Við hvetjum alla iðkendur til að mæta í æfingagalla Vals eða öðrum rauðum fatnaði. Við hvetjum einnig foreldra til að mæta og fagna uppskerunni með börnum sínum.

Með Valskveðju
Uppskeruhátíðarnefnd

Wednesday, May 4, 2011

Næstu æfingar....

Hæhæ

Vegna afmælis Vals þá falla æfingar niður fös 06.maí í stóra salnum og út vikuna á eftir, 09-14.maí.
Það eru svo tónleikar 17.maí í salnum svo æfingin sem á að vera þá fellur líka niður.

19.maí myndum við þá hittast aftur :)

kv.Dagný

p.s.Minni á bloggið hérna fyrir neðan í sambandi við dósasöfnunina!

Dósasöfnun í dag 4.maí

Dósa og flöskusöfnun 4. maí


Miðvikudaginn 4. maí ætla allir yngri flokkar Vals í handbolta, fótbolta og körfubolta að fara í flösku og dósasöfnun, mæting er í Hlíðaskóla kl 17 og þá fá allir úthlutaðar götur til að fara í, þeir sem mæta verða að hafa einn fullorðinn með sér til aðstoðar. Hagnaðurinn skiptist jafnt á milli þeirra sem mæta og áætlum við að öllu verði lokið kl. 21.


Sjámust hress í Valsgallanum og muna að hafa svarta plastpoka meðferðis.


Elfur Sif og Gísli sími 660-8860
Foreldrar Ýmis Arnar ( 1997) Tjörva Týs ( 2000) æfa handbolta og fótbolta